Verkefni
Tryggt að þjónusta sé veitt innan tiltekins ásættanlegs biðtíma.
Ráðuneyti
HeilbrigðisráðuneytiðKafli
Heilbrigðismál
Framvinda
Unnið er að samstillingu þjónustuveitenda í öldrunarþjónustu, geðheilbrigðisþjónustu, bráðaþjónustu, skurðþjónustu og endurhæfingarþjónustu. Biðtími eftir göngudeildarþjónustu BUGL hefur styst verulega. Í lok janúar biðu 26 börn eftir þjónustu og biðin er að jafnaði innan við 1,3 mánuðir. Áður biðu jafnan um 100-130 börn á hverjum tíma eftir þjónustu og biðin var oft margir mánuðir. Miðgildi biðtíma eftir liðskiptaaðgerð fór úr 9,5 mánuðum í 4,6 mánuði á LSH frá byrjun til loka árs 2023. Sambærilegar tölur eru frá öðrum stofnunum.Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni