B.02 Orkuskipti og betri orkunýting
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Erla Sigríður Gestsdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]
Aðgerðin
Markmið: Að orkuöryggi á landsvísu verði aukið og stutt við orkuskipti í samræmi við markmið Orkustefnu um að Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti fyrir árið 2040.
Stutt lýsing: Stutt verði við orkuskipti, svo sem rafhleðslustöðvar, jarðhitaleit, innlenda eldsneytisframleiðslu, vetnisvæðingu, rafvæðingu hafna og uppbyggingu sjálfbærra smávirkjana, og styrkir veittir til aukinnar einangrunar húsa og uppsetningar varmadæla þar sem þörf er á. Árangur af aðgerðinni verði m.a. mældur í fjölda nýorkuverkefna og rafvæðingarverkefna í höfnum, fjölgun varmadæla og smávirkjana og heildarafli þeirra og fjölda jarðhitaleitarverkefna og árangri af þeim.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Orkustofnun og Orkusjóður.
- Dæmi um samstarfsaðila: Landshlutasamtök sveitarfélaga.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Orkustefna, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, nýsköpunarstefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 7 og 13, einkum undirmarkmið 7.1 og 13.2.
- Tillaga að fjámögnun: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.